Dælubílar · Stíflulosun · Lagnahreinsun

Hreinsun og viðhald frárennsliskerfa

Með vel útbúnum dælubílum og reyndu starfsfólki leysum við málin hratt, hvort sem um er að ræða bráðastíflu eða reglubundið viðhald.

Stífla? Bráðaþjónusta. Opið virka daga 8:00–17:00 · Hringdu í [Sími]

Heildarlausn

Frá greiningu til hreinsunar og viðhalds

Greining

Myndavélaskoðun sýnir nákvæmlega hvað er að gerast inni í lögnunum, án þess að grafa eða brjóta upp gólf.

Myndun lagna →

Hreinsun

Stíflulosun, lagnahreinsun og hreinsun niðurfalla með öflugum háþrýstibúnaði og sérútbúnum dælubílum.

Stíflulosun og hreinsun →

Viðhald

Reglubundin tæming gildra og rotþróa og þjónustusamningar sem halda kerfinu í lagi árið um kring.

Þjónustusamningar →

Við þjónustum

Einstaklinga Húsfélög Fyrirtæki Sveitarfélög

Þjónustusamningar

Viðhaldið í fastan farveg

Við sjáum um eftirlit, hreinsun og tæmingu samkvæmt fyrirfram ákveðnu skipulagi, svo þú þurfir ekki að hugsa um það.

  • Færri óvæntar uppákomur
  • Fyrirsjáanlegur kostnaður
  • Lagnakerfi sem endist lengur
Kynna sér samninga →

Um okkur

Þegar lagnirnar bregðast skiptir hver klukkustund máli

Hjá Dælubíla þjónustunni býr mikil reynsla af frárennsliskerfum og öllum tegundum stíflulosunar. Við leggjum áherslu á hraða og áreiðanlega þjónustu á sanngjörnu verði.

Dælubíla þjónustan er í eigu Stíflu- og myndavélaþjónustunnar ehf.

Meira um okkur →

Stífla eða spurning?

Hringdu eða sendu okkur fyrirspurn og við finnum lausn sem hentar.